Útiklefa í Breiðholtslaug
Algjörlega sammála, með útisturtum, nauðsynlegt fyrir geðheilsuna :)
Hressandi að vera úti
Get ekki tekið meira undir þetta. Þegar maður fer uppúr og heldur áfram að svitna eftir að hafa verið í pottinum er æðislegt að vera í útiklefa. Útiklefinn í Salalaug í Kópavogi er einstaklega vel hannaður og gæti verið einhvers konar viðmið hérna.
Styð þessa hugmynd. Langar virkilega í útiklefa. Það væri hægt að byggja útiklefa og hafa geymslu fyrir sólbekki í sama húsi. þá væri hægt að taka ljóta gáminn af svæðinu sem er geymsla nú.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation