Græna torgið á bílastæði við Einholt/Stórholt, verði varanlegt. Nokkur tré verði gróðursett og jafnvel nokkur blómaker hlaðin eins og á Austurvelli, Lækjartorgi.
Á svæðinu sem áður var aðeins kuldalegt bílastæði, hefur verið grænt torg, út frá verkefninu Torg í biðstöðu. Græni bletturinn er ekki stór en gerir svæðið mun meira aðlagandi. Nokkur tré og jafnvel bekkir myndu bæta það enn. Verið er að byggja fjölda íbúða á svæðinu. Þeim mættu fylgja aðrar framkvæmdir sem stuðla að góðu mannlífi í hverfinu. Með vistlegra Stórholti, gætu líka opnað verslanir, bakarí, kaffihús við Stórholt/Skipholt.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation