Hvað viltu láta gera? Mála merkingar á göngustígin á stífluhringnum Hvers vegna viltu láta gera það? Stórhættulegt að ganga eða hjóla . Búin að reina að benda á þetta áður það er geinilega verið að bíða eftir slysi
Málaðar merkingar fækka ekki þeim sem eru á ferli og minnka því ekki slysahættu. Einmitt ætti frekar að sjá til þess að sú lína sem er núna til staðar og bara tæplega sjáanleg sums staðar á leiðinni yrði fjarlægð. Þar með er öllum ljóst að einföld hægri regla gildir og misskilningur og ruglingur út af línu sem sést illa og bara á sumum stöðum mun vonandi heyra sögunni til. Svo þarf auðvitað bara að setja aðskilinn hjólastíg þarna eins og annars staðar í Elliðaárdalnum
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem uppbygging hjólreiðastíga er í öðru ferli innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Aðskildir hjóla- og göngustígar eru í samræmi við deiliskipulag Elliðaárdalsins og verður framkvæmt í áföngum á næstu árum. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation