Hvað viltu láta gera? Á nokkrum stöðum innan hverfisins eru auð grassvæði þar sem auka mætti trjágróður til að aðskilja betur íbúðarbyggð frá atvinnusvæðum með því að byrgja sýn á milli með það að markmiði að fela t.d. ljóta rusla- og grenndargáma, bílastæði, bakaðkomu iðnaðarhúsnæða svo fátt eitt sé nefnt. 1. Meðfram Bæjarhálsi, á bakvið Bónus og þar, er stór og mikil auð grasflöt sem nær alla leið frá Bókasafninu og upp að hringtorginu niður á Suðurlandsveg. Trjágróður myndi njóta sín vel á þessu svæði til að aðskilja Hraunbæinn frá atvinnusvæðinu þeim megin sem Coca Cola, ÁTVR og bílasölurnar eru, og á sama tíma fela bakaðkomu að verslunarkjarnanum hjá Bónus og endurvinnslunni, þar sem sjá má ruslagáma, stóra flutningsgáma og ýmiskonar drasl, grindur og bílar eru geymdir. Þetta myndi einnig bæta hljóðvist og skýla Hraunbænum fyrir norðanáttinni. 2. Í Viðarás, á lóðarmörkum þar sem húsin í Viðarás og Selásskóli mætast, er auð grasflöt þar sem planta mætti háum trjám líkt og gert hefur verið annars staðar meðfram skólalóðinni til að aðskilja íbúðargötuna og húsin betur frá skólanum og á sama tíma fela grenndargáma og bílastæði sem blasir við þegar gatan er keyrð. Þetta myndi einnig auka hljóðvist á milli húsanna og skólans. 3. Við enda Selásbrautar, þar sem hún mætir Brekknaás, er stórt og mikið autt grænt svæði sem mætti við meiri trjágróðri og hefði einnig það að markmið að skýla húsunum í Þingási og Þverási við sunnanáttinni. Nú þegar hafa komið fram hugmyndir um aukinn trjágróður á auð grassvæði neðst í Hraunbænum og við stóra vegginn hjá Skalla (bílastæðin hjá bensínstöðinni Orkunni) sem bæði hafa það að markmiði að fegra ásýnd hverfisins og fela t.d. stór bílastæði á bakvið gróður, og eru þessar hugmyndir viðbót við þær. Hvers vegna viltu láta gera það? Til að fegra ásýnd hverfisins og aðskilja betur íbúðarbyggð frá atvinnusvæði og byrgja sýn á milli með því að fela ruslagáma, bílastæði, bakaðkomu iðnaðarhúsnæða o.fl.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmyndin þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins og verður ein af þeim hugmyndum sem stillt verður upp á fundi íbúaráðs Árbæjar og Norðlingsholts á miðvikudaginn næstkomandi þann 28. apríl milli kl. 17-19 þar sem valdar verða 20 af þeim hugmyndum sem verða á kjörseðli hverfisins í kosningunni í haust. Hér er hlekkur á facebook event fundarins sem verður opinn og streymt beint: https://www.facebook.com/events/730082194357926/. Í einhverjum tilfellum hafa hugmyndir verið sameinaðar þar sem þær hafa verið taldar mjög áþekkar annarri/öðrum hugmyndum og í nokkrum tilfellum höfum við gert litlar breytingar á hugmyndum til þess að þær falli betur að reglum verkefnisins.* Fundir íbúaráðanna þar sem valið verður hvaða hugmyndir fara á kjörseðla hverfanna næsta haust verða formlegir aukafundir þar sem allir geta tekið þátt. Við viljum eindregið hvetja þig til þess að taka þátt í fundinum í þínu hverfi og vekja athygli á honum og hugmynd þinni eins og þú hefur tækifæri til. Dagsetningar allra fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Kæri hugmyndahöfundur Uppstilling kjörseðla fyrir kosningarnar í íbúalýðræðisverkefninu Hverfið mitt fór fram á opnum fundum íbúaráða Reykjavíkurborgar frá 22. mars til 20. maí sl. og liggur nú niðurstaða fyrir í öllum hverfum. Þín hugmynd var því miður ekki valin áfram og verður því ekki á kjörseðlinum að þessu sinni. Nánari upplýsingar um fyrirkomulagið má finna hér: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt Í fyrsta skipti var öllum boðin þátttaka í þessum lið ferilsins, þ.e. að velja hugmyndir á kjörseðilinn að yfirferðar- og samráðsferli loknu. Þátttakan í uppstillingunni fór fram úr björtustu vonum og ljóst að margar góðar hugmyndir verða á kjörseðlum allra hverfa Reykjavíkur í kosningunni í haust. Á www.hverfidmitt.is má sjá þær hugmyndir sem verða til kosninga í verkefninu Hverfið mitt þann 30. september - 14. október næstkomandi. F.h. Hverfið mitt Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation