Hvað viltu láta gera? Gera tröppur eins og í Kópavogi Hvers vegna viltu láta gera það? til heilsuræktar
Allsekki!! Leyfum Öskjuhlíðinni að vera sú nátturulega hlíð sem hún er- aðgreina hvar má hjóla og hvar ganga, svo börn og fullornir geti áfram farið í ævintýraferðir um hlíðina. Ekki malbika meira- það á ekki að vera malbik í skógi- leyfið náttúrinni að halda sér.
Það er nú þegar löng og nokkuð brött brekka í stefnu milli Perlunnar og leikskólans við flugvöllinn. Auðvelt að nýta hana eins og himnastiga.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Fagteymi sérfræðinga verkefnisins hefur lokið við yfirferð hugmynda. Hugmyndin þín er ekki tæk* til kosningar í verkefninu Hverfið mitt 2020 - 2021 þar sem umrætt verkefni er nú þegar í ferli annars staðar innan borgarkerfisins og því ekki hægt að kjósa um það að svo stöddu. Sjá hlekk á verkefni hér: https://reykjavik.is/frettir/nyr-stigur-baetir-verulega-adgengi-ad-oskjuhlid. Næsta skref í verkefninu er að velja þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation