Hvað viltu láta gera? Endurnýja leiktæki, minnka eða tryggja opna sandkassa. Hvers vegna viltu láta gera það? Á lóð þessa leikskóla er leiktæki úr sér genginn og stór hluti lóðarinnar er sandur og möl sem þjónar köttum hverfisins vel. Margir leikskolar hverfisns hafa fengið uppfærslu á sínum útisvæðum og það þarf Rauðaborg líka, ný lóð nýtist ekki bara leikskólabörnum heldur öðrum börnum hverfisins líka. Öryggi barnanna er ógnað með opnum sandkössum og þreyttum leiktækjum.
Svo sammála að taka löðina í gegn hjá Rauðaborg. Starfsfólkið frábært en löðin úr sér gegnin. Börnin eiga betra skilið úti þótt þeim liði vel útaf starfsfólkinu.
Endubætur á lóð Rauðuborgar eru löngu tímabærar.
Það er algjör nauðsyn að taka leikvöllinn í gegn á Rauðaborg. Öll leiktæki illa farin og þessi möl og sandur gera ekkert fyrir útisvæðið. Sammála því að öryggi barna er ógnað á þessum leikvelli.
Mikið atriði að hafa fallegt og skemmtilegt kringum börnin , þau bera þá meiri virðingu fyrir umhverfi sínu ,
Rauðaborg er með frábært og faglegt starf en leiktækin eru gömul og ekki samkvæmt því sem er í öðrum leikskólum hverfisins. Það er miður og brýn þörf að bæta.
Kæri hugmyndahöfundur, þakka þér kærlega fyrir þátttöku þína í verkefninu Hverfið mitt. Yfir 1320 mjög góðar hugmyndir bárust og öll þátttökumet voru slegin. Hugmynd þín var metin tæk* af fagteymi sérfræðinga verkefnisins. Þær 5 hugmyndir sem fengu flest like í hverju hverfi, af þeim sem eru tækar, fara sjálfkrafa á kjörseðlana. Þín hugmynd var ein af efstu fimm og er því sjálfkrafa komin á kjörseðilinn í þínu hverfi. Næsta skref í verkefninu er að velja aðrar þær hugmyndir sem eiga að fara á kjörseðilinn í hverju hverfi. Þetta skref fer fram á opnum aukafundum íbúaráða sem verður streymt á Facebook. Allir geta tekið þátt í þessum fundum. Þeir sem fylgjast með útsendingunni geta tekið þátt í uppstillingunni. Gaman væri að þú tækir þátt í því að vekja athygli á fundinum þegar hann verður í þínu hverfi sem og kosningunni þegar þar að kemur. Dagsetningar fundanna, hlekkir á Facebook eventa og nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni: https://reykjavik.is/uppstilling-kjorsedla-fyrir-hverfid-mitt. *Starfsfólks verkefnisins fer yfir innsendar hugmyndir og haft er samstarf við ýmsa sérfræðinga þegar metið er hvort hugmyndir uppfylla reglur verkefnisins. Nánari upplýsingar um yfirferðarferlið: https://reykjavik.is/hverfid-mitt-god-rad-fyrir-thina-hugmynd. Kær kveðja, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
Kæri hugmyndahöfundur, kosningu í verkefninu Hverfið mitt lauk þann 14.október sl. niðurstöður kosninga má sjá á www.hverfidmitt.is, Alls voru 111 hugmyndir kosnar og munu þær koma til framkvæmda á árinu 2022. Þín hugmynd hlaut ekki kosningu að þessu sinni. Næsta haust hefst hugmyndasöfnun að nýju og gefst þá Reykvíkingum aftur tækifæri til þess að setja inn hugmyndir að verkefnum sem gera hverfi borgarinnar betri og skemmtilegri. Við þökkum þér kærlega fyrir þína þátttöku og viljum hvetja þig til þess að halda áfram að vera virkur þátttakandi í málefnum hverfisins. Ýmsar leiðir eru fyrir borgarbúa til þess að hafa áhrif á þróun borgarsamfélagsins og síns nærumhverfis. Íbúaráð Reykjavíkurborgar eru lifandi samstarfsvettvangur samráðs íbúa, félagasamtaka, atvinnulífs og borgaryfirvalda. Virk íbúaráð eru í öllum hverfum Reykjavíkur og funda þau í hverjum mánuði yfir vetrarmánuðina. Nánari upplýsingar er að finna hér: https://reykjavik.is/ibuarad. Einnig viljum við vekja athygli á því að ábendingavefurinn er alltaf opinn fyrir borgarbúa sem vilja láta vita af einhverju sem betur má fara í umhverfinu eða þarfnast lagfæringar: https://abendingar.reykjavik.is. Bestu kveðjur, Eiríkur Búi Halldórsson [email protected]
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation